Fagnar 11 ára afmæli í dag 11.11.11

„Ég er búinn að hlakka til í nokkra mánuði,“ segir Anton Elí Arnarsson afmælisbarn dagsins en hann er 11 ára og fæddist 11.11.11.

Fréttablaðið greinir frá.

Anton Elí ætlar að halda upp á afmælið sitt með strákunum í bekknum. „Ég ætla að bjóða þeim í leiktækjasalinn hjá Smárabíó,“ segir hann í samtali við Fréttablaðið.

Anton Elí er í Borgaskóla og hefur ákaflega gaman af íþróttum og æfir körfubolta. Íþróttir eru uppáhaldsfagið hans og honum finnst skemmtilegast að leika við vini sína.

Að sögn móður Antons Elí hefur hann fengið nokkra athygli út af afmælisdeginum. Þegar hann fæddist kom fréttastofa Stöðvar 2 og tók viðtal við fjölskylduna. Síðan hefur verið fjallað um Anton bæði í Morgunblaðinu og Kópavogsblaðinu, þar sem fjölskyldan bjó eitt sinn þar. Árið í ár er þó sérstakt.

Umfjöllunina má lesa í heild sinni hér.