Fagna vaxtalækkuninni

Þingmennirnir Valgerður Bjarnadóttir Samfylkingu og Þorsteinn Sæmundsson Framsóknarflokki mætast í Þjóðbraut í kvöld. Þá verður helst rætt um ákvörðun Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti um hálft prósent.

Þorsteinn er gagnrýnin á Seðlabankann og frá því sáttur með hversu háir vextir eru í landinu. „Þetta er of lítið og of seint,“ segir hann. Valgerður segir hins vegar að hún telji sig ekki þess umkomna að vita betur en þeir sérfræðingar sem taka ákvarðanir. Valgerði þykir ekki rétt að stjórnmálamenn reyni að segja Seðlabankanum til. Þorsteinn segir hins vegar að 110 þúsund hafi kosið ríkisstjórnarflokkana og í umboði þess fólks telji hann sig eiga að gera það sem hann getur til að hafa áhrif til lækkunar vaxta.

Valgerður og Þorsteinn í Þjóðbraut klukkan 21:00 í kvöld.