Fæstir treysta útlendingastofnun

Útlendingastofnun fær falleinkunn í nýrri könnun MMR þar sem fólk var spurt um traust til ýmissa stofnana í samnfélaginu. Landhelgisgæslan nýtur mesta traustsins og Lögreglan fylgir þar fast á eftir.

Af þeim sem tóku afstöðu til einhverrar stofnunar sögðust 76,2% svarenda bera frekar mikið eða mjög mikið traust til Landhelgisgæslunnar og 75% til lögreglunnar. Um 45,3% þeirra sem tóku afstöðu til einhverrar stofnunar báru frekar lítið eða mjög lítið traust til útlendingastofnunar og 30,5% til dómskerfisins.

Traust til hæstaréttar, ríkissaksóknara og Landhelgisgæslunnar hefur aukist töluvert frá síðustu mælingu í nóvember 2014, en á sama tíma hefur traust til lögreglunnar dregist saman.

Niðurstöðuna má skoða hér nánar: 

\"1511