Tíðni daglegra reykinga er hlutfallslega lág hér á landi í alþjóðlegum samanburði og heldur áfram að lækka. Ef fram heldur sem horfir munu daglegar reykingar mælast um 5 prósent árið 2023 sem er viðmið margra þjóða um endatafl tóbaksreykinga.
Landlæknisembættið birtir ýmsar upplýsingar um reykingar í tilefni af hinum árlega Reyklausa degi sem var á fimmtudaginn sl.
Tíðni reykinga í Evrópu er lægst hér á landi. Frá árunum 2015 til 2018 hafa daglegar reykingar Íslendinga 18 ára og eldri lækkað úr 11 í 9 prósent. Á meðal kvenna er hlutfall daglegra reykingar hæst í aldurshópnum 55 til 64 ára eða um 13 prósent en minnst í aldurshópnum 18–24 ára eða 6 prósent. Á meðal karla er hlutfall daglegra reykinga hæst í aldurshópnum 35–45 ára eða 12 prósent en minnst í aldurshópnum 18–24 ára eða 5 prósent.
Lang algengasta dánarorsökin á Íslandi er vegna hjarta – og æðasjúkdóma. Reykingar eru áhættuþáttur 73 prósenta sjúklinga með kransæðastíflu.
Í rannsókn Hjartaverndar fyrir nokkrum árum var áætlað að lækkandi reykingatíðni Íslendinga skýrði um 22 prósent af fækkun dauðsfalla vegna kransæðastíflu á tímabilinu 1981-2006.
Þeim sem reykja daglega fækkaði um 5.500 manns milli áranna 2015 og 2018 hér á landi.