Færri unglingar reykja daglega

Verulega hefur dregið úr reykingum unglinga á síðustu tuttugu árum. Aldrei hafa jafn fáir stundað reglulegar reykingar og nú, en einungis 4% unglinga segjast reykja daglega í dag. 

Þetta kemur fram í niðurstöðum ESPAD, evrópsku vímuefnarannsóknarinnar. Vísir greinir frá. 

Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að færri og færri unglingar noti tóbak í dag samanborið við árið 1995. 32% unglinga sögðust reykja vikulega árið 1995 en tuttugu árum síðar hefur hlutfallið lækkað niður í 6%. 21% unglinga reyktu daglega árið 1995 en einungis 4% sögðust reykja daglega árið 2015.