Þjóðbraut er að venju á dagskrá Hringbrautar klukkan 21.00 í kvöld. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvmdastýra Kvennaathvarfsins, og Ólafur Björn Loftsson, frá Samtökum atvinnulífsins, verða gestir þáttarins.
Sigþrúður segir okkur meðal annars frá stöðu barna sem búa við ótta og óvissu.
Ólafur Björn hefur skoðað stöðu sveitafélaganna í landinu og hann leggur til róttækar sameiningarhugmyndir. Ólafur Björn, sem er fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi, segir okkur mat sitt á frammistöðu Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur í golfi.