Færri viðskiptavinir voru tilbúnir til að mæla með þjónustu fyrirtækja á árinu sem er að líða samanborið við árið 2014. Meðmælavísitala íslenskra fyrirtækja er lág og fer lækkandi með árunum, en meðmælavísitala 48 af 75 fyrirtækjum var lægri en fyrir ári síðan.
Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.
Könnunin náði til 20 atvinnugreina og var meðal meðmælavísitalan neikvæð í öllum greinum. 73% fyrirtækja eru með lægri einkunn en árið 2014 og aðeins 7% fyrirtækja eru með jákvæða einkunn á árinu sem er að líða. Í heildina mældust því einungis 5 af 75 fyrirtækjum með jákvæða meðmælavísitölu. Lágt hlutfall meðmælenda ætti að vera mikið áhyggjuefni fyrir íslensk fyrirtæki enda hafa rannsóknir bent til þess að jákvæð og neikvæð umfjöllun viðskiptavina sé sá þáttur sem hvað mest hafi áhrif á öflun nýrra viðskiptavina.