Stormur suðaustanlands, færð spillist

Veðurstofan varar við mögulegri ófærð á þjóðleiðum norðanlands og suðaustanlands í dag, en búast má við allhvassri eða hvassri norðan- og norðaustan átt síðdegis í dag og á morgun. Stormur verður suðaustantil í dag og hvassir vindstrengir þar við fjöll. n dregur úr vindi og ofankomu með kvöldinu.

Talsverð ofankoma verður norðantil í dag með versnandi færð, en búast má við samfelldum éljagangi norðaustan- og austanlands á morgun. Skafrenningur verður á leiðinni frá Akureyri og út á Húsavík sem og áfram austur með ströndinni allt til Vopnafjarðar.

Það er ekki að sjá að það taki að lægja að gangi norðvestantil á landinu fyrr undir kvöld og austanlands ekki fyrr en seint í kvöld eða nótt. Við Hornafjörð er reiknað með hviðum 30 til 35 m/s. Þó dragi heldur úr éljagangi um norðan- og norðaustanvert landið verður víða blint vegna skafrennings ekki síst á fjallvegum, allt frá Bröttubrekku og Holtavöruheiði í suðri, vestur um á Firði og austur á Fagradal og Oddsskarð.

Lokað er um Ólafsfjarðarmúla vegna snjóflóðahættu, en aðstæður þar verða skoðaðar fljótlega.

Fólk á ferð er hvatt til að kynna sér aðstæður á vegum í síma 1777.