Færð er víða farin að spillast á hálendinu, einkum norðanlands og er Eyjafjarðarleið lokuð og þungfært á norðanverðri Sprengisandsleið og á Öskjuleið. Einnig geta ýmsar leiðir verið varasamar vegna síbreytilegs vatnsyfirborðs í ám og vöðum.
Það er slydda í kortunum um sunnan- og austanvert landið á laugardag að því er veðurfræðingar best sjá, en hitastigið fer allt niður í eina gráðu á föstudag í norðanáttum sem þó eru ekki fyrirferðarmiklar. Búast má við bjartviðri víða um land næstu daga og tiltölulega fallegu haustveðri með hita frá fjórum gráðum til tíu, ef undan er skilinn föstudagurinn þegar hélar vel á rúðum.
Ökumönnum er ráðlagt að fara með gát þegar hitastigið nálgast frostmarkið en þá er einatt erfitt að greina hálku á vegum.