Færð er almennt góð á helstu þjóðleiðum í dag, en á annan í jólum er þjónusta Vegagerðarinnar venjubundin og opið í síma 1777 frá 06:30 til 22.00. Varað er þó við hálku mjög víða um land.
Það eru hálkublettir á Reykjanesbraut og mjög víða á Reykjanesi en snjóþekja á Suðurstrandavegi. Hálka og skafrenningur er á Sandskeiði, Hellisheiði og Þrengslum og hálka eða hálkublettir eru einnig á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi.
Hálka eða hálkublettir eru á vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og þar að auki éljagangur á Snæfellsnesi og víða á Vestfjörðum.
Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum en ófært á Hólasandi.
Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Austurlandi en þungfært í Hróarstungu og þæfingsfærð í Jökulsárhlíð og á Vatnsskarði eystra. Á Suðausturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja og víða él eða snjókoma.