Að beiðni Stjórnstöðvar ferðamála hefur Deloitte framkvæmt fjárhagslega greiningu á beinum tekjum og kostnaði ríkis og sveirarfélaga af ferðaþjónstu. Greiningin byggir á rauntölum ársins 2015.
Eingöngu er þar mældur sá hluti virðiskeðjunnar sem selur vörur eða þjónustu beint til ferðamanna. Neyslan er kortlögð á grunni greiðslukortaveltu. Brúttó opinberar tekjur af ferðamönnum árið 2015 voru 45 milljarðar króna.
Brúttó opinber kostnaður af ferðamönnum árið 2015 var 5 milljarðar króna.
Nettó áhrif ferðamanna voru 39 milljarðar króna. Nettó tekjur ríkissjóðs af ferðamönnum árið 2015 voru 28 milljarða króna. Nettó tekjur sveitarfélaga af ferðamönnum árið 2015 voru 11 milljarðar króna.
rtá
Nánar www.stjornstodin.is