Fær sér stundum bjór fyrir langhlaup

Hlaupagarpurinn Gunnlaugur Júlíusson var á meðal gesta í heilsu- og útivistarþættinum Lífsstíl í gætrkvöld en þar sagði hann frá mörgum mögnuðustu langhlaupunum sem hann á að baki, meðal annars frá Thames-hringnum sem hann hljóp samfleytt í fjóra sólarhringa.


Gunnlaugur lýsti í samtalinu við umsjármanninn Sigmund Erni í kvöld hvernig komið var fyrir honum undir lok þessa hlaups en þá var hann farinn að sjá fólk á götunni sem hann var að halupa eftir sem hann vissi að var ekki á staðnum; eftir fjögurra sólarhringa svefnleysi og endalaust hlaup var hann einfaldlega farinn að sjá ofsjónir. 


Hann lýsti því líka hvernig hann hefur úðað í sig hamborgurum og bjór fyrir langhlaup svo hann hafi næga orku til að hlaupa tímunum og jafnvel dögum saman án þess að stoppa en feitur matur dugi alla jafna best, en þó verði að hafa í huga gott jafnvægi á milli kolvetnis og próteins, ef það síðarnefnda vanti sé hætt við að gengið sé á vöðvamassa líkamans. 


Gunnlaugur byrjaði ekki að hlaupa svo orð sé á gerandi fyrr en seint á fimmtugsaldri og er enn að, kominn á sjötugsaldurinn. Það er með hreinum ólíkindum að heyra af öllum hlaupunum sem hann hefur lagt á sig yfir óbyggðir og firnindi, milli borga og bæja, svo og heilu landshlutanna.


Lífsstíl er hægt að nálgast í heild sinni undir sjónvafpsflipanum á hringbraut.is og klippur úr þættinum á forsíðu.