Fær loksins að prófa mustanginn

Viðgerðarmaðurinn Ingvar Gissurarson, sem sérhæfir sig í endurgerð breskra hefðarbíla leiðir áhorfendur bíladelluþáttarins Kíkt í skúrinn um vistarverur tveggja jagúara og eins MG bíls í kvöld.

Það er fáguð glæsismíði á þessum bílum, sem eru í báðum tilvikum það háir og víðir að innan að þegar sest er inn í þá fer ótrúlega vel um fólk sem getur rétt úr sköflungnum og baki án þess að vera aðþrengt. Það eru bæði 6 cylendra og v12 vélar í þessum fákum.

Hjólastillingar eru nauðsynlegar í rekstri og viðhaldi bíla. Álag á stýrisgang, dekkjaslit og eldsneytis eyðsla verður meiri ef ekki er hugað að þessum þáttum, en allt vinnur þetta jú saman. Vel hjólastilltur bíll eyðir minna eldsneyti og dekkjum og einnig verður minna álag á stýrisbúnaði og um leið minna viðhald á stýrisbúnaði. Til að fá upplýsingar um þetta fer Jói til Sigurðar Magnúsonar í Hjólastillingum á Hamarhöfða sem leiðir áhorfendur í sannleikam um þetta allt saman.

Loks fær sjónvarpsstjórinn Sigmundur Ernir að láta draum sinn rætast í þætti kvöldsins, en allt frá því hann tók bílpróf norður á Akureyri fyrir margt löngu hefur hann dreymt um að stíga bensíngjöfina í botn á alvöru Mustang 1969. Hann var heimsóttur í vinnuna og dreginn út og draumurinn varð að veruleika, þarna stóð jú Ford Mustang Shelby Gt500 1969 í öllu sínu veldi framan við höfuðstöðvar Hringbrautar í Sundagörðum - og segir sagan, sem lýgur ekki, að brosið sé ennþá á andliti kappans, enda mátti auðveldlega greina á svip hans hvernig hann hann varð að 17 strák nánast á leiðinni á sveitaball í þættinum.

Kíkt í skúrinn fer í gang klukkan 20:30 í kvöld.