Fær ekki að mæta í viðtal vegna aldurs

Guðjón Þórðarson, einn okkar þekktasti knattspyrnuþjálfari sem unnið hefur yfir 20 titla á ferlinum, sagði í þættinum ,,Fólk með Sirrý" á Hringbraut í gærkvöld að hann hefði rekist á veggi þegar hann hóf að sækja um vinnu á almennum markaði nú þegar hann væri kominn á miðjan aldur. Fólk þori ekki að tala við hann. Hann sagði að æskudýrkunin sem var svo áberandi um aldamótin væri komin á fullt aftur í íslensku samfélagi. Og honum hafi hreinlega verið tjáð þegar hann hafi viljað komast í atvinnuviðtal að hann væri orðinn of gamall.


Önnur lönd eru duglegri að nýta sér þekkingu og reynslu fólks á miðjum aldri að mati Guðjóns. Hann hefur samanburð því hann hefur farið í atvinnuviðtöl erlendis þar sem tekið var vel á móti sterkum, reynslumiklum karakter sem þorði að standa á sínu. Guðjón sagði skemmtilega reynslusögu í þættinum og fór á kostum. Hann er nú á skólabekk í Endurmenntun Háskóla Íslands og leggur stund á leiðtogafræði og verkefnastjórnun. Námið leggst mjög vel í hann og hann horfir bjartur fram á veginn. En þó var þungt í honum hljóðið varðandi það að fá ekki einu sinni tækifæri til að mæta í atvinnuviðtal vegna aldurs.


Fleiri fóru á kostum í þættinum. Sigurjóna Sverrisdóttir fyrrum leikkona og umboðsmaður hefur menntað sig upp á nýtt og fékk spennandi stöðu hjá fyrirtækinu Meet in Reykjavík. Hún rakst þó oft á það þegar hún fór fyrst að sækjast eftir starfi eftir MBA nám að íslenskar konur, yngri en hún, voru hræddar við að ráða hana. Hún fékk margoft höfnun áður en hún fann rétta starfið.


Þáttinn má nálgast í heild sinni á hringbraut.is, svo og klippur úr þættinum.


Fólk með Sirrý verður vikulega á dagskrá Hringbrautar fram á sumar og er þátturinn frumsýndur klukkan 20.00 á þriðjudögum.  


 


Sverrir Briem frá Hagvangi, Sigrún Waage flugfreyja sem er í nýju námi á söngkennslu í Danmörku og Ásdís Emilsdóttir Pedersen sem fór í doktorsnám í guðfræði 54 ára tóku líka þátt í umræðunni og fóru á kostum.