Fær einhver falleinkunn?

Eðlilega verða forsetakosningarnar til umfjöllunnar í sunnudagsþætti Þjóðbrautar á Hringbrautar á sunnudaginn.

 Meðal gesta okkar verður Ólafía B. Rafnsdóttir, sem er formaður VR og einn reyndasti og sigursælasti kosningastjóri landsins.

 Ólafía verður spurð um kosningabaráttuna í forsetakjörinu. Spennandi verður að heyra hvað henni þykir um aðferðir frambjóðendanna.

Hún verður í viðtali ásamt Elínu Björg Jónsdóttur, formanni BSRB.

 Þær munu eflaust ræða skipan þjóðhagsráðsins, en einsog þekkt er orðið er það einungis skipað miðaldra körlum.

 Auk þeirra koma í þáttinn; Aðalheiður Ámundadóttir, Steinrímur Sævarr Ólafsson og Kári Stefánsson.

 Meira síðar. Þátturinn verður á dagskrá milli klukkan tíu og tólf á sunnudaginn.