Fær áminningu

Samkvæmt lögum um lögmenn er hægt að svipta menn lögmannsréttindum hafi þeir hlotið ítrekaðar eða alvarlegar áminngar. Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi dómari við Hæstarétt skrifaði dómsstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur bréf vegna afgreiðslu á innsendu erindi Jóns Steinars og umsögn dómsstjórans um erindið.

Efni bréfsins taldist gefa tilefni til þess að stjórn Lögmannafélagsins tæki málið fyrir og ákvað stjórnin að kæra bréfið til úrskurðanefndar félagssins sem fer með mál sem varða meint brot lögmanna á siðareglum Lögmannafélagsins. Jón Steinar Gunnlaugsson telur að félagið hafi enga heimild til þess. Jón Steinar sagði ummæli í bréfinu til dómstjórans hefðu hæft tilefninu og ef eitthvað er verið kurteislegri en afgreiðsla dómsstórans á erindi Jóns Steinars hefði gefið tilefni til.

rtá