Fækkar á vestfjörðum og á austurlandi

 

 

Hagstofan hefur birt tölur um fólksfjölda í lok 4. ársfjórðungs 2015.. Fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu  2014-15 var 1,1% en 1,0% utan þess.

Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, hefur tekið saman og greint í umræðu áhugahóps um byggðamál á facebook, að fólkfjölgun í landsbyggðunum næst höfuðborgarsvæðinu hafi verið 2,3% á árinu en fjölgun 0,2% utan þess áhrifasvæðis.

„Þegar þessu er skipt á landshluta kemur í ljós þokkaleg fjölgun á Vesturlandi og Suðurlandi utan áhrifasvæðis sem og á \"Norðurlöndunum\",“ segir Þóroddur og á þar við Norðurland vestra og Norðurland eystra. „Það fækkar hins vegar á Vestfjörðum og á Austurlandi,“ segir Þóroddur.