Lítill gleðigjafi, stúlka, kom í heiminn á stéttinni við Barónsstíg fyrir utan Landspítalann í nótt. Mbl.is segir frá því að fæðingar séu dagleg brauð á Landspítalanum, en fæðingar á stéttinni fyrir utan spítalann séu öllu sjaldgæfari. Um fjögurleytið í nótt hafi þó væntanlegir foreldrar á leið á fæðingadeildina lent í því að lítil stúlka gat ekki beðið eftir áfangastað.
Neyðarlínan veitti fæðingaraðstoð símleiðis á meðan starfsfólk frá fæðingardeildinni þyrpist út á stétt til að aðstoða við fæðinguna, sem var afstaðinn þegar sjúkrabíll kom á staðinn.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu heilsast móður og litlu stúlkunni vel.