Fæ mér oft hamborgara

Athygli vakti í heilsu- og útilífsþættinum Lífsstíl á sjónvarpsstöðinni Hringbraut síðastliðið mánudagskvöld að Magnús Scheving, einhver helsta táknmynd Íslendinga þegar kemur að hreysti og hollum lífsháttum sagðist borða nokkurn veginn hvað sem væri, líka svokallað ruslfæði. Magnús, sem var annar tveggja aðalgesta þáttarins, sagði að fólk ræki oft í rogastans þegar það sæi til hans vera að snæða hamborgara og franskar, ellegar einhvern gamlan íslenskan heimilismat sem fyrir margt löngu væri búið að afgreiða sem varasama fæðu fyrir hjarta og æðakerfið. Nei, Magnús kvaðst vilja hafa matseðil sinn eins fjölbreyttan og kostur væri - og alls ekki vildi hann leggja blessað duftið sér til munns sem verið hefur í umræðunni hér á landi síðustu daga. "Venjulegur maður borðar 70 sinnum í viku, en fer kannski í ræktina þrisvar sinnum í viku. Ég hef tamið mér að hreyfa mig mun meira, bara hvenær sem er, jafnvel bara í sturtunni á morgnana þar sem ég tek vanalega 50 hopp, eða þegar ég er að fara í langt flug; þá tek ég kannski 50 armbeygjur áður en ég fer út í vél. Með þessu móti get ég leyft mér að borða allan venjulegan mat - en svo er hitt og það er aðalatriði: Pössum skammtana," segir Magnús og bendir fólki á að borða oftar en minna hverju sinni.


Horfa á Lífsstíl hér: