Faðir Sigríðar Bjarkar talinn ástæðan fyrir því að hún sagði sig frá rannsókninni

Ástæða þess að Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri sagði sig frá rannsókn hryðjuverkamálsins er talin vera að nafn föður hennar hafi komið upp við skýrslutökur í málinu.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu en faðir Sigríðar er Guðjón Valdimarsson.

Guðjón er fæddur árið 1953 og rekur hann fyrirtækið vopnasalinn en það sérhæfir sig í sölu skotvopna í gegnum netið. Þá er Guðjón einnig talinn stórtækur skotvopnasafnari.

Ekki liggur fyrir með hvaða hætti Guðjón tengis rannsókn málsins. Einnig kemur fram í frétta Fréttablaðsins að ekki hafi náðst í Guðjón við vinnslu fréttarinnar og því ekki hægt að segja til um viðbrögð hans við málinu.

Sigríður Björk sendi samstarfsfólki sínu tölvupóst fyrr í dag þar sem hún greindi frá framvindu málsins en póstinn má lesa hér fyrir neðan:

Ágæta samstarfsfólk.

Ég vildi upplýsa ykkur um það að í fyrrakvöld óskaði ég eftir því við embætti ríkissaksóknara að segja mig frá rannsókn máls er varðar ætlaðan undirbúning hryðjuverka. Ríkissaksóknari hefur fallist á þessa beiðni mína og flutt rannsóknarforræði málsins til embættis Héraðssaksóknara.

Þetta verður tilkynnt á upplýsingafundi lögreglu um málið nú kl. 15:03 en ástæða þessarar beiðni eru upplýsingar þess efnis að einstaklingur, sem tengdur er mér fjölskylduböndum, hefur verið nefndur í sambandi við málið. Ég óskaði eftir því að segja mig frá málinu um leið og þessar upplýsingar lágu fyrir til að tryggja rannsóknarhagsmuni og viðhalda trausti til rannsóknarinnar. Vanhæfið snýr aðeins að þessu máli en ekki öðrum verkefnum eða störfum.