Faðir einars vill hlusta á atla

Birg­ir Örn Birg­is­son, faðir Ein­ars Arn­ar Birg­is­son­ar sem viðskiptafélagi hans og lögmaður, Atli Helgason myrti í Öskju­hlíð í nóv­em­ber árið 2000, kveðst vera til­bú­inn að hlusta á Atla Helga­son, morðingja son­ar síns, vilji Atli tjá sig við hann um voðaverkið.

Þetta sagði hann í viðtali í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöld, en í fréttum stöðvarinnar kom jafnframt fram að fjöl­skylda Ein­ars ætli að senda yf­ir­lýs­ingu til Lög­manna­fé­lags­ins og lýsa yfir áhyggj­um sín­um yfir því að Atli sæk­ist eft­ir að fá mál­flutn­ings­rétt­indi á ný. Til þess þarf uppreist æru og fleklaust mannorð sem hægt er að fá í tilviki Atla fimm árum eftir fullnustu dóms.

Birgir Örn sagði í þættinum að það yrði for­vitni­legt að heyra hvað Atli hefði að segja, vildi hann á annað borð ræða við fjölskylduna sem hefur ekki heyrt frá hon­um eft­ir að í ljós kom að hann hefði banað Ein­ari.

Aðspurður sagði Birg­ir að fjöl­skyld­an hefði aldrei velt fyr­ir sér hvort Atli myndi reyna að fá upp­reist æru og sækj­ast eft­ir mál­flutn­ings­rétt­ind­um á ný. Nefndi hann þó að á meðan á rétt­ar­höld­un­um yfir Atla stóð hefði hann lagt inn rétt­indi sín og hefði það verið talið hon­um til máls­bóta.

Fjöl­skyld­an hef­ur sem fyrr segir ekkert heyrt frá Atla en sagðist Birg­ir hafa haft fregn­ir af hon­um þegar hann var að hefja afplán­un og hafi hann verið síkvart­andi. Sagði hann aðspurður að sér fynd­ist ekk­ert óeðli­legt að Atli hefði í ein­hverri mynd reynt að sýna iðrun: \"Mér sýn­ist hans dómgreind og siðferði óbreytt,“ sagði Birg­ir. Benti hann einnig á að fengi Atli mál­flutn­ings­rétt­indi sín á ný gæti hann orðið dóm­ari og leist hon­um ekki vel á það.