Guðmundur S. Brynjólfsson, pistlahöfundur Hringbrautar, notaðist við Facebook-samskipti Sveins Andra Sveinssonar lögmanns við Ástríði Rán Erlendsdóttur og birtir í nýrri bók sinni, Líkvöku. Ástríður Rán tók eigið líf á Vogi í fyrra.
Þetta kemur fram í Stundinni í dag. Guðmundur staðfestir í blaðinu að hann noti facebook-samskiptin í bókinni.
Stundin vitnar til samskiptanna í bókinni og byggir á facebook-samskiptum lögmannsins við ungu konuna sem svipti sig lífi eftir að hafa fallið á bindindi. M.a. segir lögmaðurinn á facebook:
„Ég er ágætis hnykkjari – ég gæti bæði hnykkt hálsinum í lag og svo hnykkt í þig á eftir.\" Broskall fylgir.
Þá býður lögmaðurinn stúlkunni í rauðvín og osta heim til sín en hún móast við og segist hætt að drekka.
Lögmaðurinn kallar hana „litlu píku“ og býður henni fé svo hún geti keypt sér ný föt.
Rithöfundurinn Guðmundur segir við Stundina að í sögunni birti hann ekki orðrétt samskipti sem urðu í rauveruleikanum en miðli anda þeirra.