Facebook hættir ekki að sýna Páli þessa auglýsingu: „Ég er ekki að fara að kaupa þessa græju!“

Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður og útvarpsstjóri, segir frá erfiðleikum sínum með Facebook-auglýsingar í færslu sem hann birti á miðlinum í kvöld.

„Það hefur eitthvað slegið saman vírunum hjá facebook! Eins og þið vitið er njósnað um mann á fb. Ef maður t.d. flettir upp hóteli á Tenerife fyllist fb hjá manni af auglýsingum um einmitt ferðir til Tenerife. Ég veit ekki hvað ég hef gert til að verðskulda að fá bara þessa auglýsingu ALLTAF þegar ég opna fb - dögum saman!“

Þetta skrifar Páll og birtir mynd af auglýsingunni sem er að flækjast fyrir honum, en á henni má sjá risastóra sáðfrumu og eggfrumu. Um er að ræða app sem á að hjálpa fólki að verða ólétt, með því að halda því upplýstu um egglos og frjósemisgluggann.

„Ég er ekki að fara að kaupa þessa græju!“ skrifar Páll sem virðist ekki vera að pæla í barneignum þessa stundina.