Það syrtir verulega í álinn fyrir Facebook í kjölfar uppljóstrana um að bresku fyrirtæki hafi tekist hafi að ná til allt að 50 milljóna kjósenda fyrir bandarísku forsetakosningarnar 2016 á grundvelli persónuupplýsinga sem fyrirtækið, Cambridge Analytica, átti ekki að hafa aðgang að.
Hlutabréf í Facebook hríðféllu um fimm prósent við upphaf viðskipta í kauphöllinni í New York í dag. Öll spjót standa nú að Facebook og Mark Zuckerberg, stofnanda og aðaleiganda. Yfirvöld beggja vegna Ermasunds vilja nú vita hvort fyrirtækið hafi staðið nægilega tryggilega að persónuvernd notenda. Tilkynnt var að Evrópusambandið sé að hefja rannsókn á málinu og sömu sögu er að segja af yfirvöldum á Bretlandseyjum.