Breska greiningar- og ráðgjafarfyrirtækið Cambridge Analytica sagði upp forstjóra sínum, Alexander Nix, í gær.
Á leynilegum upptökum sem Channel 4 sjónvarpsstöðin í Bretlandi sýndi á sunnnudag mátti sjá Nix og annan forstöðumann fyrirtækisins lýsa vafasömum aðferðum þess við að afla umbjóðendum kosningafylgis, meðal annars með því að leggja mútu- og kynlífsgildrur fyrir pólitíska andstæðinga.
Nix var rekinn rétt áður en Channel 4 sýndi annan hluta uppljóstrunar sinnar í gærkvöldi. Þar mátti heyra Nix lýsa því að hann hefði oft hitt Donald Trump og að það hafi í raun verið Cambridge Analytica sem kom Trump í Hvíta húsið.
Í uppljóstrunum síðustu daga hefur líka komið í að Cambridge Analytica notaði Facebook prófíla allt að 50 milljóna kjósenda fyrir bandarísku forsetakosningarnar 2016 með óleyfilegum hætti. Þeirri starfsemi var stýrt af Steve Bannon, sem jafnframt sat í stjórnunarteymi Cambridge Analytica áður en Donald Trump réð hann sem einn helsta ráðgjafa sinn.
Bannon átti líka stóran þátt í því að fá fjármagn að fyrirtækinu frá Robert Mercer, sem var einn stærsti fjárhagslegi bakhjarl kosningabaráttu Trumps.