Facebook ætlar að opna stefnumótaþjónustu á vefnum hjá sér.
Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, greindi frá þessu í gær á árlegri F8 ráðstefnu Facebook í San José í Kaliforníu. Nýja þjónustan, segir Zuckerberg, er hugsuð fyrir fólk sem hyggur á stofnun langtímasambands, ekki skyndikynna. Zuckerberg benti á að 200 milljón manns á Facebook væru skráð einhleypir.
Hlutabréf í Match Group, eiganda stefnumótaappsins Tinder, hafa fallið um 23% í kjölfar yfirlýsingar forstjóra Facebook.