Facebook lokaði í gær Facebook síðu Christophers Wylie, mannsins sem ljóstraði upp um hvernig Facebook var notað í stórum stíl og með undirförulum hætti til að herja á allt að 50 milljónir kjósenda og ýta undir kjör Donalds Trumps í forsetakosningunum 2016.
Wylie var einn stofnanda Cambridge Analytica, breska fyrirtækisins sem sá um gagnavinnslu Trump-framboðsins fyrir samfélagsmiðla, og jafnframt helsti hugmyndafræðingur þeirra aðferða sem notaðar voru. Hann hefur nú endurskoðað hug sinn gagnvart þessum aðferðum og gengið ötullega fram í að afhjúpa málið í samstarfi við The New York Times, breska blaðið The Observer og yfirvöld.
Hér er mjög upplýsandi viðtal við Wylie sem The Guardian birti í gær.
Þar segir Wylie að Cambridge Analytica hafi verið alhliða áróðursvél sem notuð hafi verið til að spila með hug heillar þjóðar. Hann viðurkennir ábyrgð í málinu og lýsir eftirsjá sinni í viðtalinu.
Í síðustu viku hafði Facebook líka lokað fyrir aðgang sjálfs fyrirtækisins Cambridge Analytica.
Í yfirlýsingu Facebook fyrir helgi kom fram að Cambridge Analytica hefði misnotað persónuupplýsingar, og jafnvel einkaskilaboð, tugmilljóna kjósenda sem aflað hafði verið með appi sem Facebook hefði upphaflega leyft, en síðan bannað. Bæði fyrirtækin, Facebook og Cambridge Analytica segjast síðan hafa eytt þessum persónuupplýsingum en samkvæmt fréttum New York Times eru þær enn til.
Sterkefnaður stuðningsmaður Donalds Trump, Robert Mercer, svo og Steve Bannon einn aðalráðgjafa Trums áttu stóran þátt í að byggja upp Cambridge Analytica frá árinu 2013.
Robert Mueller, sérstakur saksóknari í afsskiptum Rússa af forsetakosningunum hefur krafist afhendir á öllum göngunum frá Facebook og Cambridge Analytica.