Fá væntanlega greidd laun eftir miðjan júlí

Starfsfólk WOW air sem missti vinnu sína þegar flugfélagið varð gjaldþrota undir lok mars getur vænst þess að fá ógreidd laun sín greidd úr ábyrgðarsjóði launa eftir miðjan júlí. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson, annar skiptastjóra þrotabús WOW, í samtali við RÚV.

Sveinn Andri Sveinsson segir að forgangskröfum í þrotabú flugfélagsins sé haldið til hliðar og að þau mál hafi verið unnin í nánu samráði við stéttarfélögin. Forgangskröfur í þrotabúið eru laun, launatengd gjöld og greiðslur í lífeyrissjóði.

RÚV greinir frá því að ferlið sé með þeim hætti að þrotabúið hafnar eða samþykkir lýstar launakröfur, samþykktar launakröfur séu svo sendar ábyrgðasjóði launa sem samkeyrir upplýsingarnar og borgar síðan starfsfólkinu ógreidd laun, upp að ákveðnu marki.

Sveinn Andri segist ekki búast við að ábyrgðarsjóðurinn greiði starfsfólkinu ógreidd laun fyrr en í fyrsta lagi eftir að hefðbundnum þriggja mánaða uppsagnarfresti starfsfólks ljúki í júlí.

Að hans sögn hefur nokkur þúsund kröfum þegar verið lýst í þrotabúið og þar af séu stöku kröfulýsingar frá launafólki WOW air komnar inn. Hann býst þó við fjölda kröfulýsinga frá VR, Flugfreyjufélaginu og Félagi íslenskra atvinnuflugmanna á næstunni.