Sjúkraliðar, félagar í stéttarfélagi SFR og lögreglumenn lýsa ánægju með kjarasamkomulag sem undirritað var í nótt.
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, segir markmiðum náð um launahækkanir en alls munu laun hækka rúm 32% fram til 2019. Þá segir Árni ekki síður áhugvaert að stjórnvöld skuldbindi sig til að stytta vinnuvikuna á nokkrum stofnunum án þess að það skerði laun eða afköst stofnana.
Talsmenn félaganna segja að vinna og lausn hjá Salek-hópnum svokallaða hafi verið forsenda samninganna í nótt.