Fá landabruggarar 6 ára fangelsi?

Óhætt er að segja að stórum hluta samfélagsins sé brugðið yfir afar þungum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi burðardýr í 11 ára fangelsi í síðustu viku.

Ekki er langt síðan fangelsismálastjóri ræddi í samtali við Akureyri vikublað í sumar þann vanda sem harðari refsingar við fíkniefnabrotum hafa skapað, þar sem ekki hefur verið gert ráð fyrir auknu rými fyrir fanga. Á sama tíma hafa ýmsir fleiri viljað nálgast fíkniefnarefsingar með nýjum hætti, líta á þau út frá veikindasjónarmiði og sýnt áhuga á á flokka þau sem heilbrigðisvanda í stað þess að beita hörðum viðurlögum. Oft hefur verið rætt um burðardýr sem fórnarlömb mansals.

Kristján Þór Júlíusson heilbigðisráðherra er í hópi þeirra sem vilja leita nýrra leiða í baráttu við fíkniefnavandann. Á facebook-síðu sinni tengir fyrrverandi ráðherra, Björgvin G. Sigurðsson við frétt vísis þar um og segir viðhorf Kristjáns Þórs góðar fréttir. Björgvin telur líkt og margir fleiri sem rætt hafa dóm héraðsdóms á opinberum vettvangi að ekki sé nema stigsmunur á vanda sem tengist áfengi og öðrum fíkniefnum. Rannsóknir Helga Gunnlaugssonar abrotafræðings benda til að einkum sé það menningarmunur sem skýrir hvers vegna sumir vímugjafar eru leyfðir en aðrir ekki og viðurlög eins misjöfn eftir efnum eins og raun ber vitni. Helgi telur aðeins tímaspursmál hvenær neysla léttustu fíkniefni sem í dag eru ólögleg verði afglæpavædd,

„Styð Kristján Þór Júlíusson eindregið í þessari manneskjulegu og framsýnu nálgun. \"Stríðið\", sem slíkt, gegn fíkniefnum er sviðin jörð sem litlu skilar. Leita þarf nýrra leiða þar sem fræðsla, forvarnir og öflug meðferðarúrræði eru kjarni máls.
Hin hliðin, og sú svarta, er forkastanlegur dómur Héraðsdóms í dag yfir burðardýri fíkniefna í svo gott sem ævilangt fangelsi: Réttarhneyksli og ekkert annað. 
Er ekki næst að loka landabruggara í fangelsi í einsog 6 ár? Þeir framleiða, og sumir selja, fíkniefni/eiturlyf litlu eða engu skárra en þau sem nú eru ólögleg.
Nei, stríðið og stappið í fíkniefnamálum er á villigötum, innan réttar og utan. Vona að ný stefnumótun skili okkur fram á veg með mannúð og mildi að leiðarljósi.

Það á að hjálpa fólki á fætur. Ekki troða það í svaðið, leiðist það afvega, með harðnsekju og áralangri frelsissviptingu. Byggja fólk upp, ekki rífa það niður,“ skrifar Björgvin G. Sigurðsson.

Núverandi heilbrigðisráðherra er einnig þeirrar skoðunar að sú stefna sem rekin hefur verið undanfarna áratugi sé ekki að skila tilætluðum árangri.

„Já, ég bara bíð. Ég er að reka þetta mál áfram,“ hefur visir.is eftir Kristjáni Þór Júlíussyni.