Fá 500 króna hækkun: dugar fyrir tveimur pizzum – „við erum svo sem orðin vön því“

„Enn eitt árið kemur fram fjárlagafrumvarp, uppfullt af vonbrigðum fyrir öryrkja. Enn eitt árið er öryrkjum ætlað að draga fram lífið á engu. Enn eitt árið er litið á öryrkja sem skítugu börnin hennar Evu. Og enn eitt árið túlkar fjármálaráðuneytið lög um almannatryggingar öryrkjum í óhag. Fjárlagafrumvarpið er öryrkjum svo sannarlega vonbrigði, enn eitt árið. Við erum svo sem orðin vön því.“

Þetta segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalagsins í Fréttablaðinu. Þar gagnrýnir hún ríkisstjórnina harðlega. Hún segir:

„Kannski örlaði á smá von þegar við á síðasta ári, lásum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, að Ísland ætti að vera land tækifæranna. Og til að svo mætti verða væri þörf á að styrkja sérstaklega stöðu þeirra sem höllum fæti standa. Voru loksins bjartari tímar fram undan fyrir þá sem ekki haf annað milli handanna en örorkulífeyrinn. Kannski þykir ríkisstjórninni hún vera að standa við þessi orð með hækkun örorkulífeyris nú um ríflega átta þúsund krónur fyrir skatta.“

\"\"

Þá segir Þuríður Harpa að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fari ekki að lögum þegar hækkanir á bótum fylgi ekki launaþróun, heldur hækki um rétt ríflega verðbólgu.

„Og skattalækkunin færir öryrkja á strípuðum bótum alveg heilan fimmhundruð kall. Þessar rétt um níu þúsund krónur duga svona rétt fyrir tveim pizzum á vinsælum stað. Það sér hver maður hvað það þýðir mikið innihaldsríkara og sjálfstæðara líf fyrir öryrkja. Enn eitt árið horfa öryrkjar upp á gjána á milli tekna þeirra og atvinnuleysisbóta breikka,“ segir Þuríður Harpa og bætir við að lokum:

„Og enn eitt árið þurfa öryrkjar að herða gatslitna sultarólina til að reyna að láta enda ná saman. Mikið væri nú gott að sjá stjórnmálamenn standa við orð sín í stað þess að upplifa sömu vonbrigðin á ný, enn eitt árið.“