Innanbúðarmenn í Sjálfstæðisflokknum á höfuðborgarsvæðinu eru sammála um eitt:
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um helgina er aðeins formsatriði. Eyþór Arnalds hefur þar afgerandi sigur í leiðtogavali.
Fregnir af prófgráðum sem aldrei voru til og ýmsum fullyrðingum sem standast ekki skoðun hafa engin áhrif á fylgi hans meðal sjálfstæðismanna.
Næst verður Áslaug Friðriksdóttir, en flestir bíða þó spenntir eftir afdrifum Kjartans Magnússonar, reyndasta borgarfulltrúa flokksins.
Samkvæmt reglum flokksins mun uppstillingarnefnd raða á lista á eftir oddvitanum Eyþóri og flestir gera ráð fyrir Áslaugu í öðru sæti, þótt uppstillingarnefnd sé alveg frjáls að vali sínu.
Ef hins vegar Kjartan fær slaka kosningu í þriðja sæti – til dæmis innan við 20 prósent – eru þeir margir til sem telja að hann ætti ekki erindi ofarlega á lista eftir slíka útkomu.
Eftir áratuga valdaleysi flokksins í gamla höfuðvíginu, Reykjavík, er nefnilega sterk krafa innan flokksins um víðtæka endurnýjun.
Við Áslaugu verður varla hróflað enda eina konan í hrútalyktinni í leiðtogakjörinu og eini núverandi frambjóðandinn sem gæti haft skírskotun talsvert út fyrir flokkinn.
Viðmælendur Hringbrautar meðal sjálfstæðisfólks telja því líklegt – fái Kjartan slaka útkomu í leiðtogakjöri – að Eyþór oddviti muni gera kröfu um gagngera endurnýjun og að reyndasti borgarfulltrúi flokksins sé ekki á lista yfir þá sem hann hefur þar í huga.
Leiðtogakjörið – kjartan fórnarlambið?
Fleiri fréttir
Nýjast