Eyþór ívar: markmiðið að kaupmannahöfn verði höfuðborg nýs viðskiptahraðals í evrópu

Eyþór Ívar Jónsson, lektor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn, CBS, er gestur Jóns G. í kvöld. Þeir ræða um hlutverk stjórna, tilnefningarnefndir, hvers vegna það þurfi öðru vísi stjórnir í sprotafyrirtækjum og auðvitað að stjórnarmenn eru fulltrúar jafnt smárra sem stórra hluthafa. Þá ræða þeir nýjan og athyglisverðan mennta-tæknihraðal sem Eyþór er ásamt fleirum að setja á laggirnar í Kaupmannahöfn. Menntun er stór atvinnugrein í heiminum og öll tækni sem hjálpar til við að gera menntun auðveldari er eftirsóknarverð fjárfesting. Eyþór segir að mennta-tækniumhverfið á Norðurlöndunum standi að þessu og markmiðið sé að gera Kaupmannahöfn höfuðborg Evrópu á sviði tækni í menntun.

Þátturinn Viðskipti með Jóni G. er klukkan 20:30 í kvöld.