Svanbjörn Thoroddsen fékk 3,6 milljónir króna fyrir vinnu sína við gerð skýrslu um stöðu RÚV. Formaður nefndarinnar sem gerði skýrsluna, Eyþór Arnalds, fékk sjálfur 750 þúsund krónur fyrir vinnuna.
Þetta kemur fram í svari Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur, þingmanns Vinstri grænna um kostnað vegna umdeildrar úttektar Eyþórs-nefndarinnar svonefndu um fjárhagsvanda RÚV á síðasta ári. Heildarkostnaður skýrslunnar nemur samtals 4.867.650 krónum.
Í svari ráðherra kemur einnig fram að kostnaður umfram þá sérfræðivinnu sem þeir Svanbjörn og Eyþór unnu hafi numið 696 þúsund krónum. Sá kostnaður hafi verið greiddur af ráðuneytinu, líkt og framlag þeirra fyrrnefndu.
Til viðbótar greiddi ráðuneytið KOM almannatengslum 97.650 krónur fyrir undirbúning og framkvæmdar kynningarfundar sem haldin var um útgáfu skýrslunnar.