Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefur endurgreitt MS þær 200 þúsund krónur sem framboð hans í leiðtogakjöri flokksins hlaut frá fyrirtækinu í styrk, að því er fram kemur á vef Morgunblaðsins.
Að sögn Egils Sigurðssonar, formanns stjórnar MS, fékk Eyþór styrkinn fyrir mistök eða misskilning. Nokkur óánægja ríkti með styrkinn á Facebook-síðu kúabænda og gagnrýndu margir þeirra ákvörðunina um að veita hann.
Styrkveitingin fór ekki fyrir stjórn MS og var því ekki samþykkt af henni. „Svona peningastyrkir hafa ekki tíðkast frá okkur til stjórnmálaflokka eða stjórnmálastarfs á undangengnum árum eða langt árabil,“ segir Egill, sem kveðst hafa farið yfir málið og segir það einsdæmi í fyrirtækinu.
Hann bætir við, í samtali við mbl.is að Eyþór hafi sjálfur haft samband við MS og endurgreitt styrkinn í morgun.