Eyþór Arnalds vill breyta heiti Garðastrætis í Kænugarðsstræti

Eyþór Arnalds, fráfarandi leiðtogi minnihlutans í Reykjavík, mun á morgun leggja fram tillögu í Skipulagsráði þar sem nafnanefnd er falið að breyta heiti Garðastrætis í Kænugarðsstræti.

Frá þessu greinir Eyþór á Facebook-síðu sinni.

Eyþór segir borgarstjórn hafa samþykkt ályktun þar sem innrás Rússlands er fordæmd og lýst sé yfir stuðningi við fólkið í Úkraínu.

Með því að breyta nafninu í Kænugarðsstræti sé verið að minna á tengsl Íslands og Úkraínu.