Tengdafaðir Eyþórs Arnalds og viðskiptafélagi til margra ára, Hörður Jónsson, er varamaður í stjórn eins stærsta verktakafyrirtækisins í Reykjavík, Þingvangs. Þingvangur byggir hundruð íbúða víða um Reykjavík og eitt stærsta nýja hverfi borgarinnar í Laugarnesinu. Hörður er fósturfaðir eiginkonu Eyþórs og sonur hans, Pálmar Harðarson, er eigandi og framkvæmdastjóri Þingvangs.
Stundin greinir frá þessu í frétt í dag. Þar kemur fram að Hörður og Eyþór, sem er borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, hafi unnið saman í viðskiptum um árabil, meðal annars í fyrirtækjunum Strokki Energy, Krossaneseignum - eignarhaldsfélagi utan um fasteign álþynnuverksmiðju á Akureyri, Hagavatnsvirkjun og Íslenskri vatnsorku. Hörður er auk þess varamaður í stjórnum tveggja eignarhaldsfélaga sem eiga Þingvang, Eignasamsteypunni og Íslandsbersa.