Ey­þór Arnalds kveð­ur borg­ar­stjórn: „Borg­in er fög­ur - og nótt­in er ung“

Ey­þór Arnalds, borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins, hefur kvatt borgar­stjórn eftir fjögur ár í starfi. Síðasti fundur frá­farandi borgar­stjórnar fór fram á þriðju­daginn og minntist Ey­þór starfsins með ljóð­rænni færslu sem hann birti á Face­book.

„Borgar­stjórn kvödd.
Sum eru hungruð
sum er södd
Borgin er fögur - og nóttin er ung.“

Með færslunni lét Ey­þór fylgja nokkrar myndir frá fögnuði frá­farandi borgar­stjórnar og af myndunum að dæma virðist hafa farið einkar vel með þeim Ey­þóri og Degi B. Eggerts­syni, borgar­stjóra, þótt þeir hafi nú ekki alltaf verið sam­mála í pólitíkinni.

Nú standa yfir meiri­hluta­við­ræður í borginni á milli Fram­sóknar, Sam­fylkingar, Við­reisnar og Pírata. Ey­þór Arnalds á­kvað að gefa ekki kost á sér í ný­gengnum sveita­stjórnar­kosningum og ætlar að hætta í pólitík til að sinna fjöl­skyldunni og sínum eigin hugðar­efnum.

Skjáskot/Facebook