Eyrún gefur ferðavagnaeigendum góð ráð: „Ekki leyfa eldhættunni að skyggja á sólina“

„Um liðna helgi áttu sér stað tveir hjólhýsabrunar. Sem betur fer sakaði engan og því mikilvægt fyrir okkur að nota tækifærið og læra af þessum brunum, átta okkur á því hve raunveruleg hættan er þegar ferðavagnar eiga í hlut,“ segir Eyrún Viktorsdóttir, forvarnarfulltrúi brunavarna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, í grein sem birt er á vef Vísis.

Hún birtir þar nokkur ráð, sem hún kallar „eldklár“, fyrir eigendur ferðavagna:

Slökkvitæki skulu vera til staðar í öllum breyttum bílum, húsbílum og ferðavögnum.

Hlaðið og yfirfarið slökkvitæki árlega hið minnsta.

Reykskynjarar og gasskynjarar eru frábærir ferðafélagar.

Sömu reglur gilda um brunavarnir heimilanna og í bústöðum.

Kynnið ykkur flóttaleiðir og gerið flóttaáætlun.

Verið á varðbergi gagnvart gróðureldum.

Staðsetjið hvorki hefðbundin grill, ferðagrill né einnota grill of nálægt mannvirkjum, skjólveggjum eða gróðri.

Nauðsynlegt er að prófa gaskútinn og ganga úr skugga að búnaðurinn sé þéttur og rækilega skorðaður.

Góð regla er að skrúfa fyrir gaskúta áður en lagt er af stað.

Sama á við um rafmagnstengingar – mikilvægt er að yfirfara þær og skorða vel.

Farið almennt varlega með opinn eld.

Ef eldur kemur upp, hringið strax í 112.