Vestfirðingar vel gefnir vinnuþjarkar!

Vestfirðingar eru vel gefnir vinnuþjarkar. Eyrbekkingar eru úrkynjaðir sóðar. Eyfirðingar eru siðsamir en Austfirðingar hreinlátir og forsjálir

Svo segir í umsögn Bjarna og Eggerts en þeir riðu um íslensk héruð á 18. öld og gáfu landsmönnum lyndiseinkunn eftir búsetu.

Tekin hefur verið saman mynd með helstu einkunnum þeirra félaga um Íslendinga. Fer sú mynd eins og eldur í sinu um netheima þessa dagana en heiðurinn af myndinni á eftir því sem Hringbraut kemst næst Ásdís Guðmundsdóttir. Kortinu var fyrst póstað á facebook árið 2012 en hefur nú náð flugi í ljósi sögulegra samtímaatburða.
Um íbúa núverandi höfuðborgarsvæðis og í grennd segir að þeir séu tómlátir og ómannblendnir. Það er þó vel sloppið miðað við íbúana á Eyrarbakka því þar bjuggu á 18. öld að mati Eggerts og Bjarna \"úrkynjaðir sóðar\" eins og fyrr er getið! Árnesingar eru sæmdarfólk og góðir bændur. Rangæingar sparsamir og kurteisir. Skaftfellingar kyrrlátir og áburðarlitlir, tala fátt. Austfirðingar góðir bændur, hreinlátir og forsjálir. Eyfirðingar kyrrlátir og siðugir og Þingeyingar líkir Eyfirðingum að mati Eggerts og Bjarna. Skagfirðingar framhleypnir og digurmæltir. Dalamenn skynsamir, iðnir og fjörugir líkt og Borgfirðingar en innan um eru þó \"vandræðamenn\". Snæfellingar eru duglegri en Sunnlendingar svo nokkuð sé nefnt.
Setja verður fyrirvara við samantektina sem fyrst og fremst virðist gerð til að skemmta landsmönnum en sannarlega er spurn eftir slíku þessa dagana!