Eyland

Markaðurinn getur vissulega oft verið skrýtin skepna. Sú þróun sem við höfum orðið vitni að síðustu vikur og mánuði – hlutabréfaverð fer lækkandi, gengið fellur og verðbólguálag hækkar – ætti hins vegar að koma fáum á óvart. Þrátt fyrir að engar undirliggjandi efnahagsforsendur réttlæti þá miklu og vaxandi svartsýni sem nú einkennir um margt stjórnendur fyrirtækja og fjárfesta þá eru fjármálamarkaðir framsýnir og stjórnast af væntingum um þróun efnahagsmála. Öll óvissa, líkt og við sjáum núna vegna stöðunnar á vinnumarkaði, er eitur í beinum fjárfesta. Eftir að kröfugerð verkalýðsfélaganna leit dagsins ljós hefur sú óvissa aukist til muna enda eru kröfurnar með slíkum ólíkindum að það tekur nánast engu tali. Ómögulegt er að sjá hvernig þær geta verið grundvöllur að viðræðum um kjarasamninga sem fela í sér raunverulegar kjarabætur.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/skodun/eyland