Herjólfur í umsjá eyjamanna

Jón Gunnarsson samgönguráðherra segir það koma til greina að Vestmannaeyjabær taki við rekstri ferjunar Herjólfs. Skipið er nú í slipp og er ekki búist við að Herjólfur hefji aftur siglingar milli lands og Eyja fyrr en eftir máðu eða svo.

Á borgarafundi í Eyjum var af fullri alvöru rætt um að Eyjamenn fái sjálfir að ráða fjölda ferða Herjólfs á dag. Á fundinum var sagt að rétt væri að Eyjamenn sjálfir tæki við rekstri skipsins að hluta til eða að öllu leiti.

Áformað er að kynna þá tillögu og bera hana svo upp við samgönguráðherra. Bærinn tekur þá að sér að reka þjóðveg til Vestmannaeyja en ferjur og flóabátar eru hluti þjóðvegakerfisins.

Bæjarráð hefur fjallað um þá slæmu stöðu sem upp er komin vegna ákörðunar Vegagerðarinnar um að nýta flóabátin Baldur til siglinga fyrir Herjólf án þess að tryggja undanþágu til siglinga á hafsvæði B fyrir flóabátin.

Bæjarráð hefur sagt að ekki komi til greina að fengið sé afleysingaskip fyrir Herjólf sem ekki má sigla til Þorlákshafnar.

Bæjarráð telur að samkomulag þar um hafi verið rofið. Skip sem ræður við siglingar í bæði Landeyjarhöfn og Þorlákshöfn skal annast þjónutu við Eyjamenn og atvinnulíf í Eyjunum.

Baldur lokar því þjóðveginum til Eyja að hluta til.

rtá

Nánar www.vestmannaeyjar.is  www.mbl.is  www.ruv.is