Eyjamenn fagna 100 ára afmæli um helgina

Um þessa helgi fagna Vestmanneyingar 100 ára afmæli kaupstaðarins og að þann 3. júlí 1973 var Heimaeyjargosið, sem hófst þann 23. janúar það ár blásið af. Slegið er upp fjögurra daga menningarveislu og skemmtanahaldi að hætti Eyjamanna. Herlegheitin hefjast í dag með opnun sex myndlistarsýninga og tvennum tónleikum. Á morgun, föstudag verður aðalafmælishátíðin með hátíðarathöfn á Skansinum og stórtónleikum um kvöldið í boði Vestmannaeyjabæjar. Margt annað verður í boði bæði fyrir börn og þá sem eldri eru.

Tolli Morthens opnar myndlistarsýningu í Flugstöðinni í Eyjum. Sigurfinnur Sigurfinnsson opnar myndlistarsýninguna, Sigurfinnur 75 ára, 75 myndir í húsi AKÓGES. Í Einarsstofu í Safnahúsi er samsýning hjónanna, Jóns Óskars og Huldu Hákon sem þau kalla Fjallið eina og önnur verk. Í Svölukoti verður Svavar Steingrímsson með ljósmyndasýninguna, Umbrotatímar með Svabba Steingríms. Þar er að finna myndir sem hann tók í gosinu 1973 þar sem hann stóð í fremstu röð í baráttunni við náttúruöflin. Gíslína Dögg Bjarkadóttur verður í Safnaðarheimili með myndlistarsýningu sem hún kallar, Mitt á milli. Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2019, Viðar Breiðfjörð verður með myndlistarsýninguna, Millilending í Cratious-krónni á Skipasandi.

Um kvöldið eru tvennir tónleikar. Í stóra sal Hvítasunnukirkjunnar kl. 20:30 eru það tónleikarnir, Oddgeir og óperur. Þar syngur Silja Elsabet Brynjarsdóttir óperuaríur og lög eftir Oddgeir Kristjánsson við undirleik Helgu Bryndísar Magnúsdóttur. Þá mæta góðir gestir úr Reykjavík sem verða með tónleika í Alþýðuhúsinu, einnig kl. 20:30. Það er sveitin GÓSS en hana skipa Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson.