„Óhætt er að fullyrða að elstu konur og menn muna ekki eftir öðru en að alast upp með og upplifa Þjóðhátíðina okkar á hverju ári á Heimaey. Hún er jú 147 ára gömul og inngróin í okkar líf alla tíð að því er virðist. Hún er partur af okkur. Það er því þungbært fyrir alla Eyjamenn þegar okkar stærsta hátíð verður ár eftir ár fréttamatur deilna, átaka og ofbeldis,“ segir Sveinn Waage, Eyjamaður, í pistli sem hann skrifar á vef Vísis.
Háværar umræður hafa verið um meinta nauðgunarmenningu og gerendameðvirkni í tengslum við Þjóðhátíð síðustu daga, en í dag tilkynnti Þjóðhátíðarnefnd að Ingó Veðurguð hefði verið afbókaður vegna ásakana kvenna. Ingó hefur hafnað þessu alfarið og ætlar í mál við konurnar.
Sveinn, sem er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, segir að allir viti hvað Þjóðhátíð sé orðin í dag. „Við þekkjum líka fylgifiska þess er tugþúsundir koma saman að skemmta sér. Það þarf svo fáa hálfvita til.“
Hann segir þróunina sorglega. „Það er mjög sorgleg þróun undanfarin ár að orðið „þjóðhátíðarnefnd“ skuli vera bendlað við lægstu hvatir mannsins. Að henni sé sama um fólk og jafnvel styðji nauðgara og geri lítið úr þeirra glæpum,“ segir Sveinn.
„Í þessum nefndum er venjulegt duglegt fjölskyldufólk sem leggur á sig ómælda vinnu við að koma þessari hátíð á koppinn. Oftar en ekki eru svo restin af Eyjamönnum dregnir inn í umræðuna sem samsekir aðilar á „nauðgunarhátíð“ Já, hátíðin okkar er kölluð „nauðgunarhátíð“ ítrekað!? Það er kannski ekki skrítið að gjá hefur myndast á milli Eyjamanna þeirra sem duglegast gagnrýna Þjóðhátíð í hverju skrefi.“
Sveinn segir að hann sé sjálfur ósáttur við nefndina fyrir að spila ekki nóg rokk á Þjóðhátíð. Hann beinir svo spjótum sínum að Snæbirni Brynjarssyni og Heiðari Sumarliðasyni sem sögðu í hlaðvarpi sínu að: „Það er eins og það sé einhver íþrótt innfæddra að nauðga konum…“
Sjá einnig: Heiðar og Snæbjörn segja íþrótt Eyjamanna að „nauðga konum frá meginlandinu“
Sveinn segir þetta ekki ganga lengur: „Burt séð frá hæðni og öllu því er hæpið að nokkurt bæjarfélag vilji sitja undir slíku. Er einhver hissa á að Eyjamenn séu tregir til samskipta. Hér er samt engin tilraun gerð hefja enn eitt rifrildið. Þetta er orðið gott núna. Horfum fram á veginn og hlökkum til Þjóðhátíðar.“
Sveinn segir þó að það þurfi að viðurkenna að kynferðisofbeldi sé beitt á hátíðinni: „Það skal líka með harmi, viðurkenna að á okkar ástkæru 147 ára hátíð Eyjamanna og allra landsmanna um leið, hefur kynferðisofbeldi átt sér stað allt of oft og er það aldrei ásættanlegt enda eitt skipti einu skipti of mikið. Á hverju ári er aftur á móti reynt í hvívetna að koma í veg fyrir slíkt með öllum ráðum.“