Þau tíðindi voru sögð í morgun að Íbúðalánasjóður undirritaði í gær samning við leigufélagið Heimavelli um kaup þess á 139 fasteignum af sjóðnum í einu lagi. Heimavellir áttu hæsta tilboðið í þær í opnu söluferli sem hófst í desember síðastliðnum. 106 íbúðanna sem seldar voru til Heimavalla eru á Austurlandi.
Heimavellir eru í eigu nokkurra aðila og hefur fyrirtækið vaxið hratt undanfarið. Salan hefur vakið mismikla hrifningu og gætir sums staðar tortryggni. Á facebook-þræði áhugafólks um byggðamál hefur m.a. verið spurt hverjir eigi heimavelli en í frétt Íbúðalánasjóðs kemur fram að kaupenduur horfi til ferðaþjónustu.
\"Í stað þess að Eygló setji íbúðir á almennann markað þá selur hún íbúðir í kippum fyrir braskara.\"
Þetta segir Sigurjón Þórðarson, fyrrum alþingismaður í samtali við Hringbraut vegna fréttarinnar um að Íbúðalánasjóður hafi selt á annað hundrað íbúða og stærstan hluta fyrir austan.
\"Það er ekki verið að stofna almenn leigufélög sem miða húsaleigu við að félög séu ekki hagnaðardrifin heldur eru söfnin sett beint í hendurnar á auðmönnum,\" segir Sigurjón.
Í nóvember árið 2015 birti DV frétt um Heimavelli þar sem segir að félagið eigi íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og í sveitarfélögum á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum. Mánuði fyrr hafði orðið mikil hlutafjáraukning. Hlutafé leigufélagsins Heimavellir var þá aukið um 985 milljónir króna en Heimavellir hafa á skömmum tíma orðið eitt umsvifamesta fyrirtæki sinnar tegundar á landinu.
Í frétt DV í nóvember segir að eigendur þess hafi á síðustu árum keypt um 450 íbúðir en fjölmargar þeirra voru áður í eigu Íbúðalánasjóðs. Fjölskyldufyrirtækið Stálskip og tryggingafélagið Sjóvá eru stærstu hluthafar leigufélagsins en í eigendahópnum eru einnig þekktir fjárfestar eins og Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingarbanka, og Arnar Gunnlaugsson, fyrrverandi knattspyrnukappi.