Öryggi fólksins í landinu sem biður um öruggt húsaskjól er undir því að ríkisstjórnin fái að starfa lengur. Þetta segir Eygló Harðardóttir, velferðarmálaráðherra. Hún segir að húsnæðisvandinn sé slíkur að úrlausn vanda fjölda fólks sé lykilmál yfirstandandi kjörtímabils og húsnæðismálafrumvörp hennar leysi vanda almennings.
Þetta sagði ráðherrann í þingumræðu að lokinni stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í morgun.
\"Við erum í sárum,\" sagði Eygló og kallaði eftir samstöðu fólksins i landinu við að koma þökum yfir fólkið í landinu.