Birgitta Jónsdóttir kapteinn Pírata segir rosalega mikla spennu einkenna andrúmsloftið innan ríkisstjórnarinnar. Hún segir ástæðu þess að forsætisráðherra standi ekki með Eygló Harðardóttur í deilum velferðarráðherrans og fjármálaráðherra vera þá að Eygló ógni stöðu Sigmundar Davíðs í formannsstóli Framsóknar.
Þetta kemur fram í viðtali við Birgittu á Eyjunni í dag. Birgitta segir Eygló vera eina formannsefnið sem gæti hjálpað Framsókn við að endurheimta traust almennings. Hún líkir Eygló við Ögmund Jónasson og segir mögulegt að velferðarráðherrann kunni að standa í sömu sporum vegna prinsippástæðna.
Vísar Birgitta þar til þess þegar Ögmundur Jónasson gekk út úr ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar vegna ágreinings í Icesave-málinu.