Fari svo að Bjarni Banediktsson fjármálaráðherra komið í veg fyrir að húnæðsfrumvarp Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra fáist afgreitt úr ríkisstjórn á næstu dögum gæti hún lagt það fram sem þingmaður til að leggja áherslu á vilja sinn í málinu.
Fjármálaráðherra hefur látið hafa það eftir sér að frumvarp félagsmálaráðherra sé enn í mótun og þar af leiðandi sé ekki hægt að kostnaðargreina það af hálfu ráðuneytisins eins og reglur kveða á um áður en málið er lagt fram í ríkisstjórn til samþykktar. Félagsmálaráðherra hefur aftur á móti haldið því fram að frumvarpið strandi í ráðuneyti Bjarna Bendiktssonar og hann vilji gera það afturreka af efnislegum ástæðum. Því hafnar Bjarni og vísar í fyrri rök; ráðherra félagsmála sé enn að krukka í frumvarpið og það sé ekki fullbúið.
Fáir dagar eru eftir af þingi, en því á formlega að ljúka annan föstudag. Varla er nokkur von til þess að frumvarp félagsmálaráðherra náist fram á svo stuttum tíma eftir hefðbundnum leiðum, en það hefði getað liðkað til fyrir kjarasamningum að sögn verkalýðsforkólfa og raunar atvinnurekenda líka en það tekur á stofnframlögum vegna stuðnings við félagslegt húsnæði sem mikill skortur er á.
Mögulegt er því í stöðunni Eygló fari með málið framhjá ráðuneyti fjármála og leggi það fram í þinginu sem óbreyttur þingmaður, en þannig myndi hún leggja mikla áherslu á stefnu sína í málinu, enda þótt vonlaust sé að það komist í gegnum þingið með þeim leiðum.