Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist nokkuð viss um að Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra fari gegn sitjandi formanni Framsóknarflokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, í kosningum til formanns Framsóknarflokksins.
Þetta segist Oddný lesa úr orðum Eyglóar. Viðtal við Oddnýju er á dagskrá í Þjóðbraut klukkan 21:30 í kvöld.
Sigmundur Davíð hefur ekki sagt af eða á um hvort hann hyggist leiða flokkinn í komandi Alþingiskosningum.