Eyfi kristjáns spilar setbergsvöllinn

Eyfi Kristjáns skellir sér á Setbergsvöllinn á mörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar í golfþætti sínum í kvöld og kynnist þessum skemmtilega sveitavelli sem staðsettur er svo að segja í miðju borgarlandinu.

Með í för er Högni Friðþjófssonm formaður golfklúbbsins á staðnum, en hann mun leiða áhorfendur í allan sannleika um það hvernig best er að spila þennan völl sem reynir mjög víða á sér.

Í þættinum fer Eyfi líka í golfmælingu í Erninum, en nú er það varla eða ekki til siðs lengur að kaupa sér nýjar kylfur án þess að láta mæla sig frá toppi til táar - og svo auðvitað sveifluna sjálfa.

Loks verða golfráð Röggu Sigurðar á sínum stað í þættinum, en þessi ein mesta keppniskona íslensks golfs á síðustu áratugum kann að segja fólki til í þessari dásamlegu íþrótt.

Golf með Eyfa er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:45 í kvöld.